Umgengni og reglur
Við leggjum áherslu á að skapa notalegt, öruggt og faglegt umhverfi fyrir alla notendur Studio Port. Til að halda því þannig biðjum við þig einfaldlega um að:
Ganga vel um rýmið og búnaðinn og skilja við það í sama ástandi og þú tókst við því. ✨
Virða bókaðan tíma og skila rýminu á réttum tíma, því næsti notandi gæti verið á leiðinni.
Láta okkur vita ef eitthvað fer úrskeiðis eða bilar.
Notkun & ábyrgð
Forðastu að klippa bakgrunna nema það sé algjör nauðsyn (t.d. ef pappírinn er ónothæfur).
Ef bakgrunnur er klipptur berð þú ábyrgð á að taka afklippurnar með þér og farga þeim (t.d. í Sorpu).
Bakgrunnar eru kostnaðarsamir og of mikil notkun eða klipping leiðir til aukins kostnaðar og óþarfa sóunar.
Auðvelt er að laga minniháttar óhreinindi á pappír í eftirvinnslu, svo það er ekki þörf á að klippa fyrir slíkt.
Aðgangsupplýsingar eru eingöngu fyrir þig og gilda aðeins á bókuðum tíma.
Þú berð ábyrgð á eigin notkun á rýminu og búnaðinum og á öllum gestum sem þú hleypir inn. Ef reglur eru brotnar eða tjón verður á eignum Studio Port eða þriðja aðila, áskilur Studio Port sér rétt til að krefja þig um allan kostnað sem af því hlýst.
Við viljum halda stúdíóinu snyrtilegu og í góðu standi fyrir alla 🙌
Skilmálar — Stök bókun
Greiðsla þarf að berast fyrirfram til að tryggja tímann. Reikningsupplýsingar berast með staðfestingarpósti.
Afbókanir eru endurgreiddar að fullu ef þær berast með a.m.k. 24 klukkustunda fyrirvara. Afbókanir með styttri fyrirvara eru ekki endurgreiddar.
Studio Port áskilur sér rétt til að breyta bókunum ef ófyrirséðar aðstæður koma upp. Ef það gerist bjóðum við nýjan tíma eða fulla endurgreiðslu.
Skilmálar — Mánaðaraðgangur
Mánaðaraðgangur felur í sér sveigjanlega bókun á lausum tímum.
Þar sem stúdíóinu er deilt með öðrum er ætlast til þess að áskrifendur bóki af tillitssemi. Studio Port áskilur sér rétt til að takmarka bókanir ef notkun eins áskrifanda kemur í veg fyrir eðlilegan aðgang annarra.
Reikningur er sendur á kennitölu áskrifanda mánaðarlega.
Binding gildir samkvæmt völdum pakka: Brons 6 mánuðir, Silfur 3 mánuðir, Gull ótímabundið.
Brons og Silfur ljúka sjálfkrafa þegar bindingartímanum lýkur og aðgangur fellur þá niður. Viltu halda áfram velur þú einfaldlega nýjan pakka.
Uppsagnarfrestur á Gull er einn mánuður. Uppsögn sem berst fyrir 1. dag mánaðar tekur gildi í lok þess mánaðar.
Öryggi
Ef eitthvað kemur upp á, láttu okkur vita strax á info@studioport.is eða í síma 666 6696.
Við erum öll í þessu saman 💛
Við gætum uppfært reglurnar þegar þörf krefur, en reynum alltaf að halda þessu einföldu og sanngjörnu.
