Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: september 2026

1. Um okkur

Eignamyndbönd ehf. (hér eftir „við", „okkur" eða „fyrirtækið") rekur ljósmyndastúdíó til leigu á Nýbýlavegi 4–8, 200 Kópavogi, undir vörumerkinu Studio Port.

Við tökum persónuvernd þína alvarlega og vinnum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 (GDPR).

Hafðu samband við okkur vegna persónuverndar á: info@studioport.is

2. Hvaða gögnum söfnum við?

Þegar þú bókar tíma, skráir þig í mánaðaraðgang eða hefur samband við okkur söfnum við eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafn

  • Netfang

  • Símanúmer

  • Kennitala (vegna reikningagerðar)

  • Bókanir (dagsetningar, tímalengd og pakki)

  • Samskipti sem þú sendir okkur

Þegar þú notar aðgangskóðann þinn skráir rafræni lásinn á hurðinni nafn þitt og hvenær hurðin var opnuð.

Þegar þú heimsækir vefinn og samþykkir vafrakökur söfnum við einnig upplýsingum um notkun þína á vefnum, sjá kafla 5.

3. Af hverju söfnum við þessum gögnum?

Við notum gögnin þín til að:

  • Afgreiða bókanir og áskriftir: staðfesta bókanir, senda aðgangsupplýsingar og hafa samband vegna þjónustunnar. Grundvöllur: samningur við þig.

  • Gera og geyma reikninga. Grundvöllur: lagaskylda samkvæmt bókhaldslögum.

  • Gæta öryggis í stúdíóinu: aðgangsskráin sýnir hver var í rýminu og hvenær, svo hægt sé að bregðast við ef tjón verður eða eitthvað fer úrskeiðis. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir okkar og annarra notenda af öruggu rými.

  • Mæla og bæta auglýsingar okkar: aðeins ef þú hefur samþykkt vafrakökur. Grundvöllur: samþykki þitt.

4. Hverjir vinna gögnin með okkur?

Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Við notum eftirfarandi þjónustuaðila sem vinna gögn fyrir okkar hönd:

  • Squarespace — hýsing vefsins og bókunarkerfið Acuity Scheduling

  • Aðgangskerfi — rafræni lásinn og skráning á notkun hans

  • Meta Platforms — Meta Pixel, aðeins með samþykki (sjá kafla 5)

  • Tölvupóstþjónusta — til að senda staðfestingar og reikninga

Sumir þessara aðila geta vistað gögn utan Evrópska efnahagssvæðisins, t.d. í Bandaríkjunum. Slíkur flutningur byggir á viðurkenndum verndarráðstöfunum, svo sem stöðluðum samningsákvæðum ESB eða gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna.

5. Vafrakökur (cookies)

Vefsíðan okkar notar nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni. Þær eru alltaf virkar.

Með þínu samþykki notum við einnig Meta Pixel, sem hjálpar okkur að mæla árangur auglýsinga á Facebook og Instagram, t.d. hversu margir skoða verðsíðuna eða hefja bókun eftir að hafa séð auglýsingu. Upplýsingarnar berast til Meta Platforms Ireland Ltd.

Pixelinn er ekki virkur nema þú smellir á „Samþykkja allt". Þú getur hvenær sem er dregið samþykkið til baka eða breytt því undir „Stjórna vafrakökum" neðst á vefnum.

6. Hve lengi geymum við gögnin?

Við geymum persónuupplýsingar þínar ekki lengur en nauðsynlegt er í þeim tilgangi sem þeim var safnað. Reikningsgögn eru geymd í 7 ár í samræmi við bókhaldslög. Aðgangsskrá lássins er geymd í mest 3 mánuði, nema hún sé nauðsynleg vegna tjóns eða ágreinings.

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • Fá aðgang að persónuupplýsingum þínum

  • Fá þær leiðréttar eða þeim eytt

  • Takmarka vinnslu þeirra eða andmæla henni

  • Fá þær afhentar á skipulegu, algengu og tölvulesanlegu formi

  • Draga samþykki þitt til baka hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu fram að því

Til að nýta þér þessi réttindi skaltu hafa samband við okkur á info@studioport.is

8. Kvartanir

Telur þú að við meðhöndlum persónuupplýsingar þínar í andstöðu við lög getur þú lagt fram kvörtun til Persónuverndar (www.personuvernd.is).